Kjúklingabaunabuff
Kjúklingabaunir, svona c.a. 1 dl.
Hýðishrísgrjón 3 dl.
Hvítlaukur í chili olíu - eins mikið og þið viljið 
Paprika
Prúrrulaukur eða laukur
Eitthvað gott krydd frá Pottagöldrum
Kjúklingabaunirnar settar í bleyti daginn áður (8-12 tíma) og svo soðnar í 45 mín. Hýðishrísgrjónin eru líka soðin í 45 mín. Baunirnar eru síðan settar í gegnum hakkavél og síðan allt draslið sett í hrærivél eða bara hrært með guðsgöfflunum.
Rasp:
Sesamfræ
Kókosmjög
Haframjöl
Krydd
Sett í blandar á milljón og voilá 
Góður morgunmatur
Hafragrautur, Cheerios, Corn Flakes, Special K, All Bran, Rice Krispies eða Weetabix. Einnig eru til spelt kornflakes í flestum verslunum í dag og eru þær mjög góðar. Ef sykur er þörf er best að hafa það í sem minnstu mæli og nota hrásykur frekar en hvítan sykur.
Boozt a la Ingvarinn
1/2 Banani
1 lítil skyr.is jarðarberja
1 msk kókosmjöl
3 klakar
2-3 msk frosin berjablanda
Sett í blandara á milljón þangað til allt er orðið að fljótandi sulli
verði ykkur að góðu
100 hitaeiningar - ekki svo mikið þegar upp er staðið...
- 16 hnetur
- 25 M&M
- 40 g rúsínur
- 6 tsk hvítur sykur
- 1 appelsína
- 7 franskar kartöflur
- 1 bolli bjór
- 1/2 bolli hvítvín
- 1/3 snickers
- 4 tómatar
Kemur þetta einhverjum á óvart???