Vissuð þið að líkamsþjálfun eykur brennslu í hvíld?
- Brennsla í hvíld eykst með auknum vöðvum
- Lengd æfingar og hversu mikið er tekið á ræður brennslunni
- Líkamsþjálfun brennir fitu
- Megrun ein og sér brennir vöðvum
Einstaklingur tapar um 25% af vöðvamassa og 75% af fitu þegar þyngd minnkar með megrun. Þegar bætt mataræði og hreyfing vinna saman getur hlutfallslegt tap á fitu farið í 98%. Þetta segir okkur það að rétt hreyfing og bætt mataræði er lykillinn af því að ná góðum árangri í "megrun" en ekki að hætta alveg að borða. Ef hætt er að borða fer líkaminn á stillingu eins og hann sé sveltur, og reynir þá að breyta því litla sem borðað er í fituforða til að mæta frekari sulti. Og hana nú...
Vöðvar og vit er lykillinn...
Fyrst koma vöðvarnir og svo fer fitan skitan.
Ef þú bætir á þig vöðvamassa þá eykur þú grunnbrennslu líkamans allan daginn. Ímyndaðu þér að sitja á rassgatinu allann daginn (eins og ég) og vita að þú ert að brenna fitunni á fullu án þess að vera að gera nokkuð sérstakt til þess. Ástæðan fyrir þessu er sú að viðhald á vöðvum er mjög orkufrek, sérstaklega þegar verið er að byggja þá upp en einnig bara til að viðhalda þeim. Það er svo merkilegt að vöðvamassinn tekur stóran hluta af sinni orku úr fitubrigðum líkamans, en það þýðir samt ekki að maður eigi að éta mikla fitu sko.....