Lifðu lífinu lifandi!!!

Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera drulla!!!

03.02.2008 15:31:00 / ingvarinn

Brjósklos og læti bara.....

Jæja nú er maður bara kominn hálfa leið í gröfina hehe. Nei það er ekki svo slæmt, heldur er kallinn kominn með brjósklos aftur og er byrjaður í sjúkraþjálfun í Gáska sem ég held að verði þrusu gott fyrir mig 8)

Ég má samt æfa áfram, en er búinn að fá sérstakar æfingar sem ég á að gera með teygjunum í lokin, og eru þær allar miðaðar við að auka styrk í mjóbakinu. Svo fer ég í tog tvisvar í viku, þá ligg ég í svona beltum og svo færist neðri hlutinn frá efri hlutanum, heppinn ef ég dett ekki í sundur bráðlega hehe. En ég verð örugglega orðinn 195 fyrr en varir lol :P nei nei, en ég fæ kannski þennan centimeter aftur sem ég lækkaði um þarna 2003 þegar ég fékk þetta fyrst, sem er ágætt.

Núna er ég staddur í Borgarnesi hjá foreldrunum, er að reyna að hjálpa eitthvað til við að skipta um á gólfinu í eldhúsinu, en eins og einhverjir vita er búið að skipta um á gólfinu í forstofunni og er allt annað að sjá það. Ég skal reyna að setja inn myndir af því, en þær eru á vélinni hjá gamla þannig að einhver  bið gæti verið í það :lol:

Ég ætla að reyna að henda inn nokkrum myndum á eftir af íbúðinni, en ég er búinn að setja hana aftur í leigu núna :cry: en ég hef ekkert við að gera að búa þar einn þar sem kærastinn kemur ekki fyrr en í sumar einhvern tíman. En já hún er s.s. orðin alveg geðveik, held að ég geti sagt að ég hafi aldrei séð svona litla íbúð svona svakalega flotta og ef einherjum finnst það grobb þá bara finnst ykkur það :haha:

Núna er Opelinn í viðgerð uppí IH og verið að gera við sjálfskiptinguna í honum, þar sem hún er búin að vera biluð frá því að ég keypti hann. Þeir voru búnir að áætla kostnað við þetta, og var hann á bilinu 60-100 þúsund, en svo hringdu þeir á föstudaginn og þá átti varhluturinn einn að kosta 80 þúsund, ég fékk auðvitað tremma og sagði þeim að rífa bílinn í brotajárn hehe nei nei, ég fann varahlutinn notaðann, eða úr annarri gerð af Opel en þeir sögðu að hann passaði örugglega, og nú er bara að bíða og vona. Svo þegar hann kemur úr viðgerð þá er á dagskránni að selja bílinn, selja svo jeppann eða setja hann uppí nýrri jeppa. Ég er alltaf á ferðinni útá land og svona þannig að ég vil helst fá mér einhvern stærri bíl þannig að maður sé öruggari, en kannski enda ég bara í Subaru, þeir eru svo fínir bílar og lítil bilanatíðni, sjáum til.

Jæja ég ætla ekki að blaðra meira, en ég ætla að hvetja ykkur til að kíkja á nýju síðurnar mínar  sem eru til hliðar í aðallistanum, eitthvað tengt heilsu og æfingum fyrir þá sem hafa áhuga á því.

later kids :P:P:P:P:P:P

Over and out....

Ingvarinn

Maren skrifaði
Farðu vel með þig kall minn..
magga bingópartner skrifaði
sko ef þú ferð yfir 195 þá ferðu bara að reka þig í ljósin í loftinu, fólk heldur að þú sért svertingi og plús það þá máttu ekki fara í bingó. Ekki láta teygja þig of mikið
Fanney skrifaði
Hæ kjellinn, auðvitað endarðu í subaru. laus við þetta endalausa bilana vesen. hehe. kemst auk þess ALLT. verður aldrei fastur í einhverju skítasköflum,og heldur ekki það stór að hann sé að taka á sig neinn vind. algjör klassi s.s ;) Vonum að þú fáir sentimeterinn þinn aftur...hún teygjir reglulega á mér í höfuð beina og spjaldhryggsjöfnuninni...svo kannski ég ætti að fara að mæla hæðina á mér...ath hvort maður sé enn að stækka :) væri ekki amalegt...maður yrði kannski einn daginn hár og spengilegur! Verðuru í nesinu um helgina?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan