Jæja, eins og þið hafið séð er gæjinn að koma í heimsókn aftur þann 13. október n.k. og hlakkar mér og fleirum MIKIÐ til að fá hann hingað aftur. Í þetta skiptið ætlar hann að stoppa í 12 daga, sem er alveg frábært.
Um helgina var farið til Fanneyjar, þar sem Bubbi var í óvissuferð ákváðum við að gera eitthvað saman, vissum bara ekkert hvað. Á endanum var ákveðið að senda sms á Ingó, WC og Ástu og komu þau öll til okkar og við spiluðum.
Fyrst var spilað Rummikub sem var alveg fínt, nema það að Ásta tók alla kubbana og setti aldrei neitt út, þannig að það var lítið hægt að gera um tíma, en það lagaðist allt þegar hún loksins fór að tíma að setja kubbana út hehe 
Svo var ákveðið að skipta yfir í drykkjuspil þar sem liðið þótti of edrú ef svo má segja, og gekk það bara ágætlega, og án trafala, sem er, ef maður spáir í það, ótrúlegt miðað við fólkið sem þarna kom saman. 
En um næstu helgi er komið að bekkjarmóti b-bekksins, 80 módelin og ætlum við að hittast heima hjá Helenu Björk, í nýja húsinu hennar. Held þetta verði barasta mjög gaman, alltaf gaman að hitta gömlu félagana og heyra hvað er að frétta hjá þeim.
Annars er ekki mikið um að vera hérna, mikið að gera í vinnunni, eiginlega alveg brjálað. Harpa systir búin að koma sér mjög vel fyrir hérna á Akranesi. Við systkinin búin að kaupa okkur æfingartæki hérna heima og förum saman á æfingar á morgnana.
jæja, nú er komið að ykkur, adios amigos 
Ingvarinn
Niðurstöður úr síðustu skoðanakönnun 