Lifðu lífinu lifandi!!!

Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera drulla!!!

09.04.2008 19:58:00 / ingvarinn

Detox dauði og djöfullllllllll!!!!!!!!!!!

Jæja, þetta er nú ekki eins alvarlegt og fyrirsögnin segir til um hehe. Það gengur bara þrusuvel í detoxinu, var búinn að missa fimm kíló á föstudaginn, eftir einungis 5 daga, og Edna sem er með mér í þessu búin að missa 4 kíló, og það er svona svipaðar prósentur örugglega hjá okkur, en samt heldur hærri hjá henni ef ég á að vera hreinskilinn ;)

Núna er allavega meira en vika frá byrjuninni á þessu, og þetta er ekki eins erfitt ennþá eins og ég hélt að þetta yrði, en maður verður að standast þetta svona 90% og ég held svei mér þá að ég sé búinn að standast það meira en það. Auðvitað er nútímasamfélag ekki alveg vænt fyrir svona mataræði, en þetta kennir manni ýmislegt, og maður finnur leiðir til að komast sem mest hjá því að borða þetta sem er bannað.

Ég er ekki búinn að fara á vigtina aftur síðan á föstudag, en mér finnst líklegt að þyngdin minnki ekki mikið svona hratt, eða um svona kíló á viku í mesta lagi. Vil helst að þetta fari aðeins hægar, væri fínt að ná svona um hálfu kílói, þá er maður sáttur. Ég ætla samt ekki að fara beint í neitt sukk aftur þegar þessu er lokið, því ég er svo mikið jójó í þyngd og ætla að reyna að halda henni í skefjum þegar þessu er lokið. Það er svo svakalega mikið vesen að þurfa alltaf að eiga hluti í öllum stærðum til að geta bara verið til. Og svo er auðvitað annað í þessu öllu, hversu oft nennir maður í svona heiftarlegt detox???? Ekki oft þannig að betra verður að halda sér í formi eftir þetta, og eiga bara nógu þröng föt þannig að ekki sé pláss fyrir neina þyngdaraukningu hehe ;)

Ef þið viljið kíkja eitthvað á hvað ég má borða, þá er hægt að fara inná www.himneskt.is
og merkja við mjólkurlaust, sykurlaust og gerlaust. En það er margt gott að finna þarna sem betur fer, annars væri þetta frekar tilgangslaust og ég líklegur til afbrota......

Þangað til næst....

Ingvarinn

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 18:53:37 / ingvarinn

Aldrei logn hjá Ingvari frekar en venjulega :)

Jæja krakka, hvað segiði þá í dag?

Alltaf nóg að gera hjá mér, bara varla tími til að blogga..... hehe

Hvað haldiði að hafi gerst á mánudaginn? Bíllinn minn fagri ;) Opelinn eyðilagðist eiginlega bara, fór í honum tímareimin og vélin fór í hakk, demit!!!! En svona er nú bara lífið stundum, gengur ekki alltaf allt upp en maður tekur á því með jafnaðargeði sem ég er gæddur :$

Sjaldan er ein báran stök (meira hvað maður er sterkur í málsháttum ha?) því fartölvan er búin að vera í stöppu síðan soldið fyrir páska, og alltaf verið að skipta um eitthvað í henni og bæta einhverju í hana, en ekkert virkar. Fæ hana vonandi til baka í næstu viku, annars fer þetta jafnaðargeð fyrir lítið.....

Svo er ég kominn í stærstu áskorun sem ég hef tekið, úff, DETOX mataræði. Það má ekki éta kjöt, mjólk, hveiti, sykur eða neitt sem manni finnst gott, og hvað haldiði, ekkert áfengi heldur..... Jafnaðargeðið farið fyrir lítið 8| Annars gengur þetta bara svakalega vel, byrjaði á mánudaginn 31. mars og búinn s.s. með næstum því viku. Og þetta er ekki eins erfitt eins og ég hélt í byrjun, búinn að fá smá hausverk á að sleppa sykrinum líklega, en annars búinn að vera mjög orkumikill og af því ég má ekki drekka þá verður nú eitthvað merkilegt úr helgunum hjá manni hehe.

En endilega kommenta annars blogga ég aldrei aftur..... :lol:

kv Ingvarinn    

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 08:57:40 / ingvarinn

Öryrkjum fjölgar meira í atvinnuleysi

Og segir þetta fólki ekkert eða?

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 19:53:58 / ingvarinn

Er að reyna að hætta að reykja!!!

Var búinn að skrifa fullt, og það eyddist þar sem þetta blog.central.is drulludrasl vefur virkar eiginlega aldrei...... var að hætta að reykja og er frekar pirr pirr en það er samt óþolandi hvað þessi vefur opnast oft ekki og virðist ekki vera í lagi, en aðrar síður virka fínt. Maður fer nú að skoða að finna sér nýtt bloggggggggggggggggggggggg.

Ingvarinn sjóðandi :evil:


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 15:31:00 / ingvarinn

Brjósklos og læti bara.....

Jæja nú er maður bara kominn hálfa leið í gröfina hehe. Nei það er ekki svo slæmt, heldur er kallinn kominn með brjósklos aftur og er byrjaður í sjúkraþjálfun í Gáska sem ég held að verði þrusu gott fyrir mig 8)

Ég má samt æfa áfram, en er búinn að fá sérstakar æfingar sem ég á að gera með teygjunum í lokin, og eru þær allar miðaðar við að auka styrk í mjóbakinu. Svo fer ég í tog tvisvar í viku, þá ligg ég í svona beltum og svo færist neðri hlutinn frá efri hlutanum, heppinn ef ég dett ekki í sundur bráðlega hehe. En ég verð örugglega orðinn 195 fyrr en varir lol :P nei nei, en ég fæ kannski þennan centimeter aftur sem ég lækkaði um þarna 2003 þegar ég fékk þetta fyrst, sem er ágætt.

Núna er ég staddur í Borgarnesi hjá foreldrunum, er að reyna að hjálpa eitthvað til við að skipta um á gólfinu í eldhúsinu, en eins og einhverjir vita er búið að skipta um á gólfinu í forstofunni og er allt annað að sjá það. Ég skal reyna að setja inn myndir af því, en þær eru á vélinni hjá gamla þannig að einhver  bið gæti verið í það :lol:

Ég ætla að reyna að henda inn nokkrum myndum á eftir af íbúðinni, en ég er búinn að setja hana aftur í leigu núna :cry: en ég hef ekkert við að gera að búa þar einn þar sem kærastinn kemur ekki fyrr en í sumar einhvern tíman. En já hún er s.s. orðin alveg geðveik, held að ég geti sagt að ég hafi aldrei séð svona litla íbúð svona svakalega flotta og ef einherjum finnst það grobb þá bara finnst ykkur það :haha:

Núna er Opelinn í viðgerð uppí IH og verið að gera við sjálfskiptinguna í honum, þar sem hún er búin að vera biluð frá því að ég keypti hann. Þeir voru búnir að áætla kostnað við þetta, og var hann á bilinu 60-100 þúsund, en svo hringdu þeir á föstudaginn og þá átti varhluturinn einn að kosta 80 þúsund, ég fékk auðvitað tremma og sagði þeim að rífa bílinn í brotajárn hehe nei nei, ég fann varahlutinn notaðann, eða úr annarri gerð af Opel en þeir sögðu að hann passaði örugglega, og nú er bara að bíða og vona. Svo þegar hann kemur úr viðgerð þá er á dagskránni að selja bílinn, selja svo jeppann eða setja hann uppí nýrri jeppa. Ég er alltaf á ferðinni útá land og svona þannig að ég vil helst fá mér einhvern stærri bíl þannig að maður sé öruggari, en kannski enda ég bara í Subaru, þeir eru svo fínir bílar og lítil bilanatíðni, sjáum til.

Jæja ég ætla ekki að blaðra meira, en ég ætla að hvetja ykkur til að kíkja á nýju síðurnar mínar  sem eru til hliðar í aðallistanum, eitthvað tengt heilsu og æfingum fyrir þá sem hafa áhuga á því.

later kids :P:P:P:P:P:P

Over and out....

Ingvarinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 21:31:23 / ingvarinn

Mikilvægar ákvarðanir teknar á þessum merka þriðjudegi!

Maren hefur ákveðið að snúa lífinu til betri vegar og mæta með retturnar mínar í ræktina, hvergi er hægt að nálgast þvílíka hollustublöndu, líkamsrækt og jurtastöngull, geri aðrir betur....................  8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 19:20:19 / ingvarinn

Bloggmaraþon í gangi :)

Já nú er sko bloggmaraþon í gangi, bara á hverjum degi hehe

Nei ég segi bara svona, ekkert fara að búast við því neitt að ég geri það :D

En já ég vaknaði kl. 6 í morgun og bara svona líka hress. Fór á hörku æfingu, 25 á þarna skíðatrainer og lyfti svo helling. Efri parturinn tekinn í dag og svo verður neðri tekinn á morgun. Ég byrjaði líka að taka brennslutöflur sem heita EAS Thermo DynamX og virka bara svona helvíti vel, mikil orka sem dugði alveg fram eftir degi, en ég tek þetta s.s. fyrir æfingu og fyrir hádegismatinn. Svo fékk ég mér Pro Fit fæðubótarefni sem eru bara mjög góð, en fyrsti drykkurinn var það ekki jakk. Það stendur nefninlega 2-3 matskeiðar á dollunni sem ég keypti, og svo voru skeiðar í henni sem ég notaði og þær voru sko MIKLU stærri en matskeiðar en ég hugsaði að þeir hlytu nú að vera að meina þessar, og svo var þetta bara vægast sagt þykkt og ógeðslegt 8| en núna er ég búinn að læra á þetta og smakkast vel :)

En eitthvað var ég kvattur til að hætta ekki að reykja hérna, þar sem Maren keypti fyrir mig karton í fríhöfninni fyrir ár og öldum síðan og ég ekki búinn að hitta hana síðan þannig að hún hefði bara þurft að reykja það sjálf hehe, en ég kem og sæki þetta í nánustu framtíð Maren mín, engar áhyggjur af því að þú þurfir að torga þessu sjálf :)

En ég skora hér opinberlega á Fanney að drulla sér í ræktina og vera eins dugleg og ég ;);););) lov jú

Kv Ingvarinn hinn mjói


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 19:54:49 / ingvarinn

Lífið tekur nýja mynd á þessu ári, eða meira svona kroppurinn!

Jæja, langt frá síðasta bloggi segið þið? Ég ætla ekki að segja að ég hafi gert áramótaheit eða neitt svoleiðis, en ég hét sjálfum mér því í enda síðasta árs að missa kílóin sem ég þyngdist um á árinu, og að blogga meira. Þetta er að vísu bara eitt af mörgum átökum, en þau verða þó öll tekin á skynsamlegu nótunum. Byrjum á heilsunni og svona (fyrir utan retturnar, þær verða síðar á árinu)

Ég er að breyta mataræðinu í aðeins hollari mat, mikið í kjúkling og fisk sem mér finnst líka mjög gott og svo ef maður borðar skyndibita, þá verður maður bara að fara á Subway eða Serrano ef það er í boði, en annars að fá sér kjúklingasallat.

Svo byrjaði ég í ræktinni og gengur bara vel, fór 5x í síðustu viku og er stefnan sett á að halda því. Æfingarnar byrja þó hægt, gengur ekkert að ofkeyra sig í fyrstu því þá gefst maður bara upp um leið. En ég kem til með að deila þessu með ykkur hvernig gengur og endilega kjósið í skoðanakönnuninni sem er til hliðar, hefði gaman af því að vita hvort fólk trúir á mann eða ekki 8)

Svo að þessu skemmtilega. Phillip kemur til mín í mars aftur, þar sem hann ætlar með mér á árshátíð Kaupþings, ekki slæmt það. Manni hlakkar alltaf jafn mikið að sjá hann þó hann sé ný búinn að vera hérna :lol: en nóg um væmnina.

Um helgina var ég í Borgarnesi að hjálpa Pabba að setja nýtt gólf í forstofuna. Ekkert smá flott. Svo á að halda áfram og skipta um hurð á forstofunni og setja svo nýtt gólf í eldhúsið og sjónvarpsherbergið. Einnig ætlum við að rífa vegginn og hurðina á sjónvarpsherberginu og leggja gólfefnin í einu lagi þarna á milli.

En allir sem eru búnir að missa legvatn yfir bloggleysi, þá er ég búinn að blogga nú svo hold kjæft!!! :haha:

Kveðja Ingvarinn  


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 14:07:54 / ingvarinn

Vinna vinna vinna!

hellú

Það er nú ekki mikið að frétta héðan, bara vinna og svona. En það er kannski helst til að segja frá að ég er að fara til Danmörku þann 27.11.2007 jibbí :haha:

Phillip ætlar að hitta mig á Kastrup og við förum síðan á hótel í downtávn Köbenhagen sko. Það verður ekki smá gaman, og við hljótum að geta klárað allar jólagjafirnar. Nei okkur vantar ekki að vita hvað þig langar í hehe ;)

En já bara allt gott að frétta, og íbúðin er tilbúin hjá mér, rétt náði því á réttum tíma áður en ég afhenti hana í leigu, úff. En hún er ekkert smá flott, ég ætla að reyna að hlaða myndum inn hérna sem þig getið tékkað á, pínu óskýrar þar sem þær voru teknar á símann og eru ekki ætlaðar í að stækka svona mikið. Þið tékkið á því í myndaálbúminu hvort þetta tókst hjá mér :)

later dudes

Ingvarinn


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 12:28:26 / ingvarinn

Fullt að gerast, alveg brjálað að gera!!

Nú er Phillip farinn aftur til DK :cry: en við sjáumst nú aftur bráðlega.

Við erum hættir við að flytja í Borgarnes, ætlum að búa í íbúðinni á Laugarnesveginum sem er mjög gott. Held að ég fengi leið á að keyra svona á milli, og ég er í svo skemmtilegri vinnu að ég gæti ekki hugsað mér að skipta eins og er.

Ég dreif í því að leigja íbúðina út aftur, og í þetta skiptið leigði ég hana út til fyrirtækis á þrusu pening, en hún er leigð með öllu, þá meina ég öllu því það verður hægt að bara labba inn og fara í sturtu.

Ég er núna að hlaða glervegg uppi á gestaloftinu, og setja gólfefni í forstofuna. Svo verður allt málað, settar 2 viftur með ljósi og fjarstýringu í loftið. Einnig verður sett filma í glugga að framanverðu og svo keyptar plíseraðar gardínur í neðri gluggana. Held að þetta verði alveg drullu flott :)

En verð að drífa mig að vinna í þessu, heyrumst!

Ingvarinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 14:50:24 / ingvarinn

Vika í að kærastinn komi :haha: :haha: :haha:

Jæja krakkar mínir, hvað segiði gott? Ég segi bara allt það besta sko, verð að segja það. Mikið að gera í vinnunni og þið sem þekkið mig vitið að ég elska það :) svo er kærastinn að koma eftir viku, og þá er ekki hægt að segja neitt annað en gott :D

En núna á morgun er opið hús í íbúðinni minni og hvet ég alla til að fá sér kaffi og kíkja þangað þó svo ég verði nú ekki á staðnum sjálfur :) sjáiði hérna: http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=262227

Svo er maður búinn að vera mjög duglegur á skíðatækinu sem var keypt um daginn, hver veit nema það verði keypt lóðasett og bekkur ef þetta heldur áfram að ganga svona vel :) Einnig er mataræðið í enduskoðun þar sem að maður er alveg orðinn nógu þykkur sko 8| ég er semsagt í smá aðhaldi, ekki neinni svaka megrun en bara hugsa vel um mig og passa að fá rétt að borða og svona. Fæ mér mikið af heimatilbúnum ávaxtasöfum úr fínu ávaxtapressunni minni, og svo boost í morgunmat með skyri fíneríi skyr.is rúllar feitt.

Já semsagt hann Phillip minn kemur á næstu helgi, sæki hann útá völl á laugardeginum :haha::haha::haha: svo ætlum við að leggja okkur aðeins þar sem flugið hjá honum er í hádeginu að dönskum tíma og hann þarf að fara með lestinni herfilega snemma :) svo verður gert sig fínann og farið í ammóið hjá Victori og býst maður við miklu fjöri þar eins og venjulega 8)

En ef það er eitthvað í fréttum, endilega slúðra því yfir í commentin hjá mér 8)

Heyrumst og sjáumst :)

Ingvarinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 19:38:04 / ingvarinn

Lífið heldur áfram sinn vanagang :)

Jæja, eins og þið hafið séð er gæjinn að koma í heimsókn aftur þann 13. október n.k. og hlakkar mér og fleirum MIKIÐ til að fá hann hingað aftur. Í þetta skiptið ætlar hann að stoppa í 12 daga, sem er alveg frábært.

Um helgina var farið til Fanneyjar, þar sem Bubbi var í óvissuferð ákváðum við að gera eitthvað saman, vissum bara ekkert hvað. Á endanum var ákveðið að senda sms á Ingó, WC og Ástu og komu þau öll til okkar og við spiluðum.
Fyrst var spilað Rummikub sem var alveg fínt, nema það að Ásta tók alla kubbana og setti aldrei neitt út, þannig að það var lítið hægt að gera um tíma, en það lagaðist allt þegar hún loksins fór að tíma að setja kubbana út hehe :haha:
Svo var ákveðið að skipta yfir í drykkjuspil þar sem liðið þótti of edrú ef svo má segja, og gekk það bara ágætlega, og án trafala, sem er, ef maður spáir í það, ótrúlegt miðað við fólkið sem þarna kom saman. 8)

En um næstu helgi er komið að bekkjarmóti b-bekksins, 80 módelin og ætlum við að hittast heima hjá Helenu Björk, í nýja húsinu hennar. Held þetta verði barasta mjög gaman, alltaf gaman að hitta gömlu félagana og heyra hvað er að frétta hjá þeim.

Annars er ekki mikið um að vera hérna, mikið að gera í vinnunni, eiginlega alveg brjálað. Harpa systir búin að koma sér mjög vel fyrir hérna á Akranesi. Við systkinin búin að kaupa okkur æfingartæki hérna heima og förum saman á æfingar á morgnana.

jæja, nú er komið að ykkur, adios amigos :!:

Ingvarinn

 Niðurstöður úr síðustu skoðanakönnun :!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 23:11:35 / Phillip

HÆ GÆS

Hi all :)

ógeðslega gaman ad sjá ykkur aftur:D

Was so GREAT seeing you all on my last visit!!!
Hope that it will be possible to see you gæs REALLY soon again-

But one thing is sure - HELVITíS DANIN WILL BE BACK:haha:

Got my own site now, check out the pics/"dagbog" (diary), will update once in a while;)

FOR MY GUY (INGVAR) :

Èg elska þig og sakna þinn!!

MY NEW SITE:

www.123hjemmeside.dk/PHILMICHAEL

 LOV U!

Kveđja Phillip

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 22:39:43 / ingvarinn

úps i did it again......

Jæja, nú held ég að einhver verði brjálaðir, en mér er alveg sama, þá sendir mér bara einhver morðhótun.

En ég las í fréttablaðinu í dag, að pólverjar í Bolungarvík væru að senda mótmælabréf til menntamálaráðuneytisins vegna þess að í Grunnskóla Bolungarvíkur (sem telur um 160 nemendur) hafi hætt kennslu í Pólsku. Þetta fannst mæðrum pólverjanna mjög bagalegt þar sem fjölskyldan ætlar ekki að vera búsett alltaf á Íslandi, og mjög mikilvægt fyrir þá að læra móðurmálið sitt í skóla á unga aldri. OK, ætla þá pólverjar að kenna íslensku í skólum í póllandi ef ég ákveð að ættleiða lítið kríli og flytja til póllands í skamman tíma, þar sem það væri svo mikilvægt fyrir það að læra móðurmálið sitt?? Mér finnst útlendingar vera vægast sagt frekir, og þó svo að þeir heyri ekkert nema að íslendingar séu ríkasta þjóð í heiminum, halda þeir þá virkilega að við ætlum að eyða öllum peningunum okkar í þá, gleymiði þessu. Ég vil helst að sem flestir pólverjar lesi þetta, þar sem mér finnst þetta vægast sagt frekja af versta leiti, geta bara borgað einkakennslu fyrir sín börn ef þeir nenna ekki að kenna þeim pólsku sjálfir, það þurfum við að gera í öðrum löndum!!

En annars er allt gott að frétta hérna, og ég ætla að fara að sofa úr mér og athuga hvort ég verið ekki hress með tilveru pólverja aftur á morgun, því ég er ekki á móti útlendingum, eða öðru fólki ef því er að skipta, bara ekki vera með neina helvítis frekju!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 11:07:18 / ingvarinn

Daninn farinn heim!

Jæja, þá er sælan búin í bili, Phillip farinn hjem aftur, en það verður ekki langt þangað til hann kemur aftur ;)

Lenti í heldur óskemmtilegri reynslu á leiðinni heim frá flugvellinum í gær, mútta var orðin svo svöng að hún hélt að hún væri með anorexíu þar sem hún fann eitthvað óæskilegt bein sem stóð út úr öllu saman hehe. Svo var kellingin komin með samsæriskenningu á hreint um það að álverið á Grundartanga væri að losa út mengun á nóttinni af því við sáum einhvern smá reyk, ég hélt ég myndi kafna úr hlátri :)

En já annars er ekkert mikið í fréttum héðan, verð bara að fara í meggó því ég passa ekki lengur í neitt eiginlega, HELVÍTIS!!!

Læt ykkur vita þegar ég er kominn með anórexíu eins og mamma :)

 kv Ingvarinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan